Afskriftar-kóngarnir.

Það er búið að afskrifa hundraði ef ekki þúsundir miljarða hjá Stóreignamönnum frá því að hrunið skall á 2007.Samt eru þessir menn að græða í dag þó það sé búið að "hirða" allt af þeim!Við almenningur erum ekki það heimsk að við vitum að þessir Afskriftarkóngar voru búnir að koma fúlgum fjár undan á einhverjar aflandseyjar(Mafíubanka) áður enn"gjaldþrot" eða skuldir þeirra voru afskrifaðar.Hve háar þær upphæðir eru sem þeir stálu og sviku út og komu undan, má Guð vita.Meira að seigja fékk einn stærsti Afskriftarkóngurinn að halda eftir útgerð sinni,þó afskrifaðar hafi verið hjá honum í kringum 50 miljarðar.Síðan 2008 hafa þúsundir fjölskylda misst heimili sín vegna stökkbreyttra skulda,okurvaxta og verðtryggingar til dagsins í dag.Allt er það afleiðing vegna Þessara manna sem óðu í og áttu Bankana hér á landi.Já sterk er sú hönd valda og peninga sem blóðugri svipunni stjórnar á heimili landsins síðan þá og þeirra Stjórnvalda sem voru og hafa verið eftir hrunið.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Eigum við ekki, Karl Birgir, ef það liggur svona í þessu, að líta á þetta sem gott SÓKNARFÆRI: að sett verði lög á Alþingi um verulega eignaupptöku frá þessum mönnum, eftir því sem sanngjarnt og eðlilegt kann að virðast? Vinnum að því, að þingmenn fái hvatningu sem flestra um slíkt.

Jón Valur Jensson, 17.6.2014 kl. 21:57

2 Smámynd: Karl Birgir Þórðarson

Skemdarverk þessara aðila og stjórnvalda eru það mikil að það verður ekki hægt að bæta það héðan af.

Karl Birgir Þórðarson, 18.6.2014 kl. 13:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband